Mjög öflugur töfrasproti frá Casa Bugatti. Á honum eru tvær hraðastillingar ásamt öryggisnema, þannig að hann geti ekki farið í gang nema að haldið sé utan um handfangið. Honum fylgir mælikanna og 3 útskiptanlegir hnífar. Fáanlegur í 9 mismunandi litaútfærslum.
Hönnun: Innocenzi Rifino og Lorenzo Ruggieri
þyngd: 2,358kg
stærð: ø11x41cm
Viðhald: Lesið meðfylgjandi leiðbeiningar vel fyrir notkun