CLEVELAND er rafstillanlegur hægindastóll með rafstillanlegum höfuðpúða sem veitir framúrskarandi stuðning við höfuð og háls. Hægt er að halla baki aftur þó stóllinn standi nánast alveg við vegg, sem gerir hann einstaklega hentugan þar sem pláss er takmarkað.
USB-tengi er innbyggt í rofa á armi þannig að hægt er að hlaða síma og snjalltæki beint úr stólnum. CLEVELAND kemur alklæddur leðri eða í slitsterku áklæði í mörgum litum. Hægt er að fá endurhlaðanlega rafhlöðu sem gerir kleift að staðsetja stólinn frjálst án snúra á gólfi.