Vörur:

Lama Premium Stillanlegt

Stillanlegt rúm frá Danmörku

Premium er flaggskips línan frá Lama í Danmörku og það nýjasta í boði hjá Lúr. Premium kemur með 7. svæðaskiptri fjölpoka Sense+ dýnu, til að tryggja góðan og djúpan stuðning við axlar-, mjaðma- og mjóbakssvæði.

Flex+ Tryggir framúrskarandi þægindi með sveigjanlegu yfirborði - ásamt betri öndun til að minnka hitasveiflur. Aukaleg pokafjöðrun er innbyggð í stillanlegu botnana í Premium línunni -Tvöfalt springkerfi-. Lama Premium býður upp á val um mismunandi gerðir af þykkum yfirdýnum.

Lama hefur síðan árið 1939 verið þekkt fyrir heilbrigðan og góðan svefn, Danskt handverk og gæði, „Þetta er ekki bara rúm, heldur heildarhugmynd“ er hugsjónin sem unnið er útfrá. Rúmið er hannað frá A til Ö með góðan svefn í huga. Allt timbur sem notað er í framleiðslu rúma frá Lama er FSC vottað timbur, vottun um rekjanleika og sjálfbæra nýttingu skóglendis.
  • Kemur í stærðunum 90x200cm (180x200cm) og 90x210cm (180x210cm) aðrar stærðir í einstaklingsrúmum Hér
  • 5 mismunandi litir: blár, sandlitur, ljósgrár, grænn og dökkgrár (antrazit)
  • Val um 3 mismunandi stífleika
  • Val um mismunandi gerðir af fótum og hæðir á fótum, fætur fylgja
  • Rúm kemur með eða án gafls. Margar gerðir af rúmgöflum í boði.
  • Val um 3 mismunandi gerðir af yfirdýnum
  • Sense+ Fjölpokafjöðrun með einstakri 7 svæðaskiptri Há-fjölpokafjöðrun sniðna fyrir aukin þægindi ásamt dýpri og auknum stuðningi við axlar og mjaðmasvæði
  • Flex+ Þægindalag í efri hluta dýna, fyrir enn betri öndun og dýpri mýkt
  • Virkilega hljóðlátir en mjög öflugir rafmagnsmótorar
  • Aldrei sítengt rafmagn, sjálfvirkur slökkvari (relay system) sér til þess að ekkert rafmagn tengist rúmbotninum þegar hann er ekki í notkun
  • þráðlausar RF fjarstýringar, móttakari innbyggður í mótor
  • fallegur vasi fyrir fjarstýringar og smáhluti fylgir frítt með
  • 100% Dönsk framleiðsla og hönnun
  • FSC vottun um timbur úr sjálfbærum skógi
Premium í Continental útgáfu Hér

Senda fyrirspurn

Tengdar vörur