Vörur:

Lama Family Continental rúm

Continental heilsurúm frá Danmörku

Lama Family er vandað rúm frá Lama í Danmörku. Family kemur með 7 svæðaskiptri pokafjöðrunardýnu, til að tryggja djúpan og góðan stuðning við axlar, mjaðma- og mjóbakssvæði.

Flex+ tryggir framúrskarandi þægindi, með sveigjanlegu yfirborði, ásamt betri öndun til að minnka hitasveiflur. Sjálfstæðir fjaðrandi botnar auka svo þægindin með Tvöföldu springkerfi

Lama Family kemur með val um mismunandi gerðir af þykkum yfirdýnum.

Family Continental er frábær lausn fyrir þá sem vilja sitthvoran stífleikann, en halda í eitt samfellt rúm. Hægt er að fá 7 svæðaskiptu pokafjörðunardýnuna með tveim stífleikum sitthvoru meginn. Tveir sjálfstæðir botnar gefa svo aukna dýpt fyrir líkamann. Ofan á rúminu er síðan yfirdýna, 65mm Ergo+ 50mm nátturulegt Latex eða 50mm Visco.

Lama hefur síðan 1939 verið þekkt fyrir gæða danskt handverk sem stuðlar að góðum svefni „Det er ikke bare en seng, det er et koncept!“ sem mætti þýða lauslega; „Þetta er ekki bara rúm, heldur heildarhugmynd“.

Þetts er hugsjónin sem unnið er frá, konsept hugsað frá A til Ö, þar sem mikilvægt er að allir þættir rúmsins spili saman.

  • Kemur í stærðunum 120x200 / 140x200 /160x200 / 180x200 / 180x210 / 210x210
  • 3 mismunadi stífleikar í boði (hægt að hafa sitthvoran í sömu dýnunni)
  • Val um fimm mismunandi liti á áklæðið. Blár, Sandlitur, Ljósgrár, Grænn og Dökkgrár (Antrazit)
  • Mikið úrval tegunda af fótum í mismunandi hæðum
  • "Anti slip" efni svo yfirdýna færist sama og ekki neitt
  • Hágæða 7 svæðaskiptar pokafjöðrunardýnur
  • 100% Dönsk framleiðsla í 84ár
  • Skandinavísk hönnun og útlit
  • Viltu skoða Family línuna í Rafstýrðu? sjá Hér

Senda fyrirspurn

Tengdar vörur