Lama rúmin fást bæði í mismunandi stífleikum og stærðum. Um er að ræða mjög vönduð rúm með sjálfstæðri pokafjöðrun í botni og svo 7.svæðaskiptri "sense+“ fjölpokafjöðrun sem veitir aukinn stuðning fyrir axlarsvæði. Flex+ í efsta lagi rúmsins tryggir betri öndun og teygjanleika.
Lama hefur síðan 1939 verið þekkt fyrir gæða svefn, danskt handverk og gæði „Det er ikke bare en seng, det er et koncept!“ sem mætti þýða lauslega; „Þetta er ekki bara rúm, heldur heildarhugmynd“. Það er hugsjónin sem unnið er út frá, rúmið byrjar frá gólfi og upp, og því mikilvægt að allir þættir rúmsins spili vel saman. Premium rúmin eru flaggskips línan frá Lama. Val er um nokkrar gerðir af lit og áklæði, ásamt mismunandi hæð og gerð af fótum. Meðfylgjandi er svo yfirdýna, með val um 65mm Ergo+, 50mm Latex eða 50mm Visco.