SIMONA hvíldarsófi 208 cm – Með rafstillanlegum skammelum og rafstillanlegum höfuðpúðum. Bak getur hallast aftur þó sófi standi nánast við vegg. Rafstillanlegir höfuðpúðar veita góðan stuðning við háls og höfuð.
Miðsæti er einnig fáanlegt með rafstillanlegu skammeli og höfuðpúða. Innbyggt USB-tengi í rofa á endasætum fyrir hleðslu á símum og snjalltækjum. Alklæddur leðri eða í vönduðu áklæði, helstu litir til á lager, en hægt er að sérpanta úr miklu úrvali af litum, leðri og áklæðum. SIMONA er fáanlegur sem 2-, 3-, 4-, 5- og 6-sæta sófi. Kemur einnig sem stakur hvíldarstóll.